Fyrir nokkrum dögum fór í loftið ný vefsíða með sérstaka áherslu á brúarstimpla. Bridgecancels.is. Um er að ræða í grunninn utanumhald höfundar síðunnar, Sigurðar Jenssonar, um brúarstimplasafn sitt. Markmið síðunnar er ennfremur að safna saman sem mestum fróðleik tengdum stimplum á einn stað. Þar má finna m.a. öll eintök Icelandic Philatelic Magazine, ásamt sýslusafni Brian Flack, bækur eftir Þór Þorsteins ofl. Þá eru myndir af öllum brúarstimplunum í Facit verðlistanum að finna á síðunni. Þessi síða mun verða í mótun áfram og vonast Sigurður eftir að geta á síðunni líka haldið sýningar á frímerkjasöfnum annara.
Bein slóð á heimasíðuna má finna hér: www.bridgecancels.is