Samkvæmt samþykktum FF skal boða aðalfund með skriflegri tilkynningu
með minnst viku fyrirvara. Það var gert í síðasta Safni sem kom út í
október. Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 29. október
klukkan 20 í Síðumúla 17. Félagar sem eiga eftir að greiða félagsgjöld eru
hvattir til að gera það hið fyrsta. Aðeins skuldlausir félagar eru kjörgengir og
hafa atkvæðisrétt. Þeir félagsmenn sem hafa áhuga á að starfa eitthvað
fyrir félagið, t.d. í stjórn eða nefndum, eru vinsamlegast beðnir um að hafa
samband við stjórnarmenn.
Dagskrá aðalfundar
a) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
b) Formaður gefur skýrslu um störf félagsins á liðnu ári.
c) Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga.
d) Umræður um skýrslu formanns og reikninga.
e) Reikningar bornir upp til samþykktar.
f) Ákvörðun félagsgjalda.
g) Lagabreytingar.
Engar tillögur liggja fyrir um lagabreytingar.
h) Kosning stjórnar.
Kosinn er formaður og varamaður til eins árs og tveir stjórnarmenn
til tveggja ára.
i) Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.
j) Kosning fastra nefnda.
Uppstillingarnefnd, tveir aðalmenn.
Fulltrúar á LÍF þing, fjórir aðalmenn og fjórir til vara.
k) Önnur mál.